Bolungavík: ÆSKAN tónlistarhátíð!

Æskan tónlistarhátið er tónlistarhátíð unga fólksins 22ja ára og yngri sem haldin verður í Félagsheimili Bolungavíkur helgina 1.-2. ágúst næstkomandi.

Markmið þessarar hátíðar er að gefa ungu tónlistarfólki kostur á að taka þátt í alvöru tónlistarhátíð og undir leiðbeiningu frá eldra og reyndara tónlistarfólki.

22ja ára og yngri og þeir sem hafa áhuga sækja um hjá Viðburðastofu Íslands með smá tóndæmi og nokkrar setningar um bakgrunn viðkomandi listamanns eða hljómsveitar.

FYRIR ALLA KRAKKA FRÁ ÖLLU LANDINU!

Tónlistarfólkið mætir í Félagsheimili Bolungarvíkur Laugardaginn 1. ágúst kl 15:00 þar sem leiðbeinendur taka á móti þeim og farið verður í að vinna saman að tónlist og tónlistarsköpun ásamt hópefli og öðru.

ATH! Farið verður í mikilvægi þess að blanda ekki saman hugbreytandi efnum og listsköpun. VIÐ SEGJUM NEI VIÐ ÖLLU SLÍKU!!

Sunnudaginn 2. ágúst verða áframhaldandi vinnubúðir fram að tónleikum sem haldnir verða með þátttakendum kl 20:00 í Félagsheimili Bolungarvíkur.

Þátttaka á tónlistarbúðirnar er án endurgjalds!

Tónleikarnir ,, ÆSKAN,, ásamt gestum verða í Félagsheimili Bolungarvíkur sunnudaginn 2. ágúst kl 20:00 . Aðgangseyrir kr 2000

Stofnuð facebookgrúppa þegar nær dregur þar sem þátttakendur fá frekari útlistanir á dagskrá, hverjir leiðbeinendur verða og fl.

Þessi hátíð er með öllu áfengis og fíkniefnalaus!

DEILA