Árneshreppur: 1,4 m.kr. úr styrkvegasjóði

Naustvík.

Hreppsnefnd Árneshrepps hefur fengið staðfestingu frá Vegagerðinni á styrkveitingu úr styrkvegasjóði.

Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti sagði í samtali við Bæjarins besta að styrkurinn væri 1,4 milljónir króna. Verið væri að athuga hvar best er að nýta féð til vegabóta.  Einkum er horft til þess að nota fjárveitinguna í Naustvík og Kúvíkum sem báðar eru í Reykjarfirði.

Á síðasta ári fékkst einnig 1,4 m.kr. styrkur úr styrkvegasjóði og var ákveðið að verja fénu til útbóta, rétt  eins og nú, í Naustvík og Kúvíkum.

 

Í Kúvíkum var lítið þorp í utanverðum Reykjarfirði sunnanmegin. Þorpið var eini verslunarstaðurinn  í Strandasýslu um aldir þangað til Borðeyri við Hrútafjörð varð löggiltur verslunarstaður 1846. Verslun og búseta lögðust af í Kúvíkum á 20. öld þegar síldarævintýrið í Djúpavík byrjaði og fluttist öll verslun þangað á þeim tíma.

 

DEILA