29 þúsund tonnum aflamagns ráðstafað til sérstakra aðgerða

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ráðstafað rúmlega 29 þúsund tonnum aflamagns í bolfiski til sérstakra aðgerða samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu. Er það nokkuð minna magn en á síðasta fiskveiðiári sem skýrist af samdrætti í leyfilegum heildarafla fyrir næsta fiskveiðiár sem fylgir vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

Um árlega úthlutun er að ræða sem byggir á lögum um stjórn fiskveiða en samkvæmt þeim er 5,3% af afla í hverri fisktegund dregið af leyfilegum heildarafla til að mæta áföllum, til stuðnings byggðalögum,  línuívilnunar, strandveiða, rækju- og skelbóta, frístundaveiða og annarra tímabundinna ráðstafana. Hér getur að líta yfirlit um breytingar í aflamagni á milli fiskveiðiára (tonn):

2020/21 2019/20
Strandveiðar 11.100 11.100
Línuívilnun 2.229 3.445
Almennur byggðakvóti 6.128 7.069
Skel- og rækjubætur 2.466 2.513
Frístundaveiðar 300 300
Aflamark Byggðastofnunar 6.857 6.899
Samtals aflamagn: 29.080 31.326
DEILA