Torfnesvöllur: aðgengi breytt

Ísafjarðarbær og HSV hafa ákveðið að breyta aðgengi að Torfnesvelli. Á meðfylgjandi korti er breytingin sýnd.

Grænt svæði er  eingöngu fyrir þátttakendur og starfsfólk leiksins.

Rautt svæði sýnir  gönguleiðir að aðgönguhliði/miðasölu í stúku.

Samúel Samúelsson, formaður knattspyrnudeildar Vestra segir að aðgerðirnar séu liður í því að uppfylla leyfiskerfi KSÍ sem sett er fyrir lið í tveimur efstu deildum Íslandsmótsins. Einnig er verið að hækka girðingu við Skutulsfjarðarbraut upp í 2 metra og segir Samúel að svæðið muni uppfylla reglur KSÍ fyrir fyrsta leik sumarsins um helgina.

Fram til þess hefur völlurinn verið á undanþágu en nú verður bætt úr.

DEILA