Nýtt fasteignamat: Mest hækkun á Vestfjörðum

Margrét Hauksdóttir er forstjóri Þjóðskrár Íslands.

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 2,1% frá yfirstandandi ári og verður 9.429 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár Íslands fyrir árið 2021. Þetta er umtalsvert minni hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan þegar fasteignamat hækkaði um 6,1% á landinu öllu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Þjóðskrá Íslands.

 

Mest hækkun á Vestfjörðum

Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 2,2% en um 1,9% á landsbyggðinni. Þar af er mest hækkun á Vestfjörðum eða 8,2%, um 6,5% á Norðurlandi vestra, 3,5% á Austurlandi og um 2,2% á Suðurlandi, 1,9% á Norðurlandi eystra, um 0,4% á Vesturlandi, og lækkun um 0,5% á Suðurnesjum.

Af einstaka bæjarfélögum hækkar heildarfasteignamat mest á Ísafirði eða um 11,2%, um 8,8% í í Akrahreppi og 8,5% í Tálknafjarðarhreppi og á Blönduósi. Mest lækkun er í Skorradalshreppi og Sveitarfélaginu Vogum þar sem fasteignamatið lækkar um 3,6%.

Almennt eru litlar breytingar á aðferðarfræði fasteignamats á milli ára. Aðferð við lóðarmat var endurskoðuð auk þess sem hætt er að að nota sérstaka matsaðferð á búgarða. Einnig er verið að endurskoða hlunnindamat jarða og færa það til nútímahorfs. Að öðru leyti er helsta breytingin hagnýting á gervigreind sem styrkir núverandi aðferðarfræði og líkanagerð við fasteignamat.

Íbúðamat á Ísafirði hækkar um 15,5%

Samanlagt mat íbúða á öllu landinu hækkar um 2,3% á milli ára og verður alls 6.511 milljarðar króna, þar af hækkar sérbýli um 2,2% á meðan fjölbýli hækkar um 2,4%. Almennt er hækkun á íbúðarmati á höfuðborgarsvæðinu 2,4% en 2,1% á landsbyggðinni.

Fasteignamat íbúða hækkar mest í Akrahreppi en þar hækkar íbúðarmatið um 17,8%, á Ísafirði um 15,5% og í sveitarfélaginu Ölfusi um 15,2%. Mestu lækkanir á íbúðamati eru í sveitarfélaginu Vogum þar sem fasteignamat íbúða lækkar um 5,2%, Í Vopnafjarðarhreppi lækkar matið um 3,6% og í Reykjanesbæ þar sem fasteignamat íbúða lækkar um 3,3%.

Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 1,7% á landinu öllu; um 1,6% á höfuðborgarsvæðinu en um 1,9% á landsbyggðinni.

Nýja fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2020. Það tekur gildi 31. desember 2020 og gildir fyrir árið 2021. Frestur til að gera athugasemdir við nýtt fasteignamat er til 30. desember 2020.

Fjölbýli – verðið hæst á Ísafirði

Á vef Þjóðskrár er að finna upplýsingar um verðþróun á fermetraverði. Miðað við nýjustu upplýsingar er  verðið á Vestfjörðum hæst í eldri byggðinni á Ísafirði. Þar er meðalverðið í fjölbýli 230 þúsund krónur fermetrinn. Í Bolungavík er verðið um þriðjungi lægra eða um 136 þúsund krónur hver fermetri.

DEILA