Nýjar veiðitölur frá Landsambandi veiðifélaga – Vestfirðir ekki með

Laugardalsá er dæmi um laxveiðiá þar sem fiskirækt hefur verið stunduð.

Alls eru komnar veiðitölur frá 27 veiðisvæðum umhverfis landið en þó nokkrar eiga eftir að bætast við og verða með í söfnun veiðitalna næsta miðvikudag 1. júlí. Ekki hafa borist veiðitölur frá öllum veiðisvæðum en þær tölur verða settar inn þegar þær berast.

Efst á listanum okkar er Urriðafoss í Þjórsá en veiðin gekk afar vel síðustu veiðiviku og er komin í alls 399 laxa. Veiðin á svipuðum tíma í fyrra (26.06.2019) var komin í 319 laxa og árið þar áður (27.06.2018) höfði veiðst 391 laxar. Þetta er því mesta veiði af þessu veiðisvæði sem byrjaði sem samstarfsverkefni landeigenda og Iceland Outfitters og hófst sem tilraunaverkefni árið 2016 en þá var veitt á tvær stangir. Árið 2018 var stöngum fjölgað úr tveimur í fjórar og hefur þetta verkefni gengið vonum framar.

Í öðru sæti er Norðurá í Borgarfirði með alls 189 laxa en veiðin hefur gengið vel og veiddust alls 81 laxar í síðastu veiðiviku. Borið saman við svipað tímabil í fyrra (26.06) þá höfðu veiðst 29 laxar og hafa því veiðst 160 laxar meira þetta veiðitímabilið. Hafa ber í huga að veiðin í fyrra leið fyrir fordæmalausar aðstæður sem einkenndust af bágum vatnsbúskap, háun vatnshita og almennt afar erfiðum aðstæðum til veiða.

Eins og ritað hér að ofan þá eiga eftir að berast fleiri veiðitölur en búast má við að við höfum veiðitölur úr flestum ám í næstu samantekt.

Þó vikulega séu færtar inn tölur um laxveiði víða um land eru tölur um laxveiði í þeim 11 ám sem eru á skrá Landsambands veiðifélaga og eru á Vestfjörðum ekki nýlegar. Þannig eru í flestum tilfellum 3 til 10 ára gamlar tölur um árlega laxveiði.

DEILA