MÍ: 39 nemendur útskrifaðir

Birkir J. Einarsson tekur við skírteini sínu og viðurkenningu. Mynd: M.Í.

Menntaskólinn á Ísafirði útskrifaði á laugardaginn 21 dagskólanemanda, 8 dreifnámsnemendur og 10 nemendur í fjarnámi sem valið hafa að útskrifast frá skólanum og eru stórum hluta eru búsettir utan Vestfjarða. Alls voru útskrifaðir 39 nemendur með 40 skírteini.

Þrjátíu og tveir nemendur luku stúdentsprófi. Flestir þeirra eða 12 voru á opinnu braut.  Sjö útskrifuðust af félagsvísindabraut og jafnmargir af náttúruvísindabraut. Þrír útskrifuðust af afreksíþróttasviði. Fimm luku skiptstjórnarprófi A og vélstjórnarnámi B , sjúkraliðanámi og framhaldsskólapróf af lista- og nýsköpunarbraut  luku samtals þrír, einn af hverju.

Eftirfarandi nemendur fengu verðlaun fyrir námsárangur, ástundun og félagsstörf :

 

Gylfi Sigurðsson

Verðlaun Orkubús Vestfjarða fyrir góðan námsárangur í skipstjórnargreinum

 

Birkir Jónas Einarsson

Verðlaun til minningar um hjónin Margréti Leósdóttur og Jóhann Júlíusson.

Gefin af Kristjáni G. Jóhannssyni og Ingu S. Ólafsdóttur. Verðlaunin eru veitt fyrir góða ástundun og árangur í vélstjórnargreinum

Ásdís Halla Guðmundsdóttir

Semidúx með einkunnina 9,2

Verðlaun Háskólans í Reykjavík fyrir góðan námsárangur í eðlisfræði og stærðfræði. Auk bókargjafar fær verðlaunahafinn nýnemastyrk og niðurfelld skólagjöld fyrstu önnina kjósi hann að hefja nám við Háskólann í Reykjavík.

Verðlaun Eymundsson fyrir góðan námsárangur í ensku

Verðlaun Sögufélags Ísfirðinga fyrir góðan námsárangur í sögu

 

Ásrós Helga Guðmundsdóttir

Verðlaun Ísfirðingafélagsins í Reykjavík til minningar um Jón Leós, veitt fyrir lofsverða ástundun, framfarir í námi og félagsstörf

 

Árný Margrét Sævarsdóttir

Verðlaun Danska sendiráðsins fyrir góðan námsárangur í dönsku

Verðlaun Þýska sendiráðsins fyrir góðan námsárangur í þýsku

 

 

Georg Rúnar Elfarsson

Verðlaun Gámaþjónustu Vestfjarða fyrir góðan námsárangur í umhverfismennt.

 

Hildur Karen Jónsdóttir

Verðlaun Landsbankans fyrir góðan námsárangur í sálfræði og uppeldisfræði

Menntaverðlaun HÍ fyrir góðan námsárangur á stúdentsprófi, ástundun og eftirtektaverða þátttöku í félagsstörfum.  Auk bókargjafar fær verðlaunahafinn styrk sem nemur upphæð skráningargjalds fyrsta skólaárið kjósi hann að hefja nám við Háskóla Íslands.

 

Karolina Anikiej

 

Verðlaun Íslandsbanka fyrir góðan námsárangur í félagsgreinum

 

Karólína Sif Benediktsdóttir

Verðlaun Sjóvár fyrir félagsstörf

 

Lára Ósk Albertsdóttir

Verðlaun Embættis landlæknis fyrir góðan námsárangur í heilsutengdum fögum

 

 

Monika Janina Kristjánsdóttir

Verðlaun Menntaskólans á Ísafirði fyrir góðan námsárangur í frönsku

 

 

Sigríður Erla Magnúsdóttir

Verðlaun Menntaskólans á Ísafirði fyrir skapandi greinar

 

 

Þuríður Kristín Þorsteinsdóttir

Verðlaun Kerecis fyrir góðan námsárangur í líffræði og lífeðlisfræði

Verðlaun til minningar um Guðbjart Guðbjartsson sem gefin eru af Ragnheiði Hákonardóttur, Guðbjarti Ásgeirssyni og fjölskyldu fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum.

 

Verðlaun Menntaskólans á Ísafirði fyrir góðan námsárangur í íslensku

Verðlaun Aldarafmælissjóðs Ísafjarðarbæjar fyrir hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi.

Hér koma myndir frá athöfninni sem bb.is fékk frá Menntaskólanum.

Þuríður Kristín Þorsteinsdóttir
Sigríður Erla Magnúsdóttir
Monika Janina Kristjánsdóttir
Karolina Sif Benediktsdóttir
Karolina Anikiej
Hildur Karen Jónsdóttir
Ásrós Helga Guðmundsdóttir
Árný Margrét Sævarsdóttir
Lára Ósk Albertsdóttir
Ásdís Halla Guðmundsdóttir
Georg Rúnar Elfarsson

 

DEILA