Melrakkasetur Íslands í Súðavík

Heimskautarefurinn er eina spendýrið á Íslandi sem hefur komið hingað til lands án hjálpar mannsins.

Melrakkasetur Íslands ehf. var stofnað í Súðavík 15. september 2007 og meðal stofnfélaga eru einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög. Þessir aðilar eiga það sameiginlegt að hafa áhuga á íslensku tófunni og öllu sem henni við kemur, svo og náttúrulífs- og sögutengdri ferðaþjónustu.

Langtímamarkmið með stofnun setursins eru þau að safna saman á einn stað allri þekkingu, efni og hlutum sem tengjast melrakkanum í fortíð og nútíð. Að setja upp sýningar fyrir ferðamenn þar sem verði á boðstólum fræðandi efni í máli og myndum um refi í náttúrunni, hérlendis sem erlendis, refarækt og refaveiðar.
Enn fremur að stuðla að og taka þátt í rannsóknum á líffræði tegundarinnar og þróun sjálfbærrar náttúrulífs-ferðamennsku.

Opnunartímar

júni – ágúst – opið alla daga

maí og sept – opið alla daga 10:00-14:00

október – apríl – eftir samkomlagi,

DEILA