Matvælastofnun berst gegn heimaslátrun

Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu á meintri ólögmætri dreifingu afurða af heimaslátruðu sauðfé á Norðurlandi síðastliðinn vetur.

Tveir einstaklingar búsettir þar buðu lambakjöt til sölu á samfélagsmiðli.
Grunur leikur á að kjötið komi úr heimaslátruðu sauðfé.

Samkvæmt lögum um slátrun og sláturafurðir má einungis dreifa og selja kjöt sem hefur verið slátrað í löggiltu sláturhúsi og heilbrigðisskoðað af dýralækni á vegum Matvælastofnunar.

Meint brot felst í því að taka til slátrunar sauðfé utan sláturhúss og setja á markað afurðirnar af því fé án þess að það hafi verið heilbrigðisskoðað í samræmi við gildandi löggjöf.
Einungis má nýta afurðir af heimaslátruðu fé til einkaneyslu.

DEILA