Hvernig losar þú þig við samkeppnisaðila – nokkur góð ráð handa einokunarfyrirtæki

Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Að vera einokunarfyrirtæki er vandasamt verkefni. Eins og nafnið gefur til kynna þá getur þú í krafti stærðar og stöðu á markaði einokað markaðinn og hrakið alla samkeppni í þrot. Ef neytendur og ríkið setja engin mörk, þá getur einokunarfyrirtækið hagað sér nokkurnvegin eins og þeim sýnist og setið eitt að peningum neytanda. Sem betur fer hafa neytendur ekki sætt sig við slíka hegðun og hefur með stuðningi samkeppniseftirlits hefur það reynst einokunarfyrirtækjum æ erfiðara að einoka markaðinn.

En það er nú samt von. Ef einokunarfyrirtækið vandar sig þá eru nokkrar leiðir til þess að losa sig undar ábyrgðinni að vera lang stærsta fyrirtækið á markaði.

Hér fyrir neðan eru nokkur skref fyrir einokunarfyrirtæki sem vilja losna sig við samkeppnisaðila:

 

  1. Framleiddu eins vörur og samkeppnisaðilin
    Nýjir aðilar á markaði koma gjarnan inn með nýjar áherslur í vöruframboði. Þeir þróa vörur sem neytendum finnst vera spennandi og eru tilbúnir að færa sig frá einokunarfyrirtækinu sem ekki hefur sinnt því sem skyldi.

    Með því að kópera nýsköpun hins nýja samkeppnisaðila og þróa eins vörur (þótt þær heiti öðru nafni) minnkar þú sérstöðu hans.

  2. Ráðast beint á sérstöðu littla samkeppnisaðilans
    Ef samkeppnisaðilin hefur náð að skapa sér sérstöðu, t.d. með því að bjóða uppá umhverfisvænar umbúðir, þá má alls ekki leyfa honum að komast upp með slíkt og bjóða umsvifalaust upp á eins pakkningar. Ef þú getur ekki boðið uppá eins pakkningar, þá má breyta pakkningum og merkja þær umhverfisvænar.
  3. Hefja markaðsherferð hægt og rólega
    Mikilvægt er að byrja ekki á stórri auglýsingaherferð þar sem þú berð þínar endurbættu vörur saman við samkeppnisaðilan og segir neytendum að vörur hans séu ekkert sérstakar. Frekar gera þetta hægt og rólega og smásaman hrekur þú nýja aðilan út af markaðinum. Ef þú gerir þetta með látum þá fatta neytendur hvað þú ert að gera og geta brugðist illa við.
  4. Lækka verðið með afsláttum undir borðið
    Ef ekkert gengur og neytendur halda áfram tryggð við littla samkeppnisaðilan, þá er eitt gamalt og gott ‚trix‘ sem hægt er að nota. Auðveldasta og skilvirkasta leiðin til að gera út af við minni samkeppnisaðila er nefnilega að lækka verðið, jafnvel niður fyrir kostnaðarverð, og hrekja hann þannig í þrot. En þar sem það er bannað, þá er ein leið framhjá því að bjóða uppá svokallaða „markaðsstyrki“, þá býður þú endursöluaðilum sama gamla verðið en greiðir samhliða styrki til þeirra á móti og lækkar þannig vöruna, þótt það komi hvergi fram.

 

 

Þessi ráð eru öll siðlaus og það síðasta ólöglegt með öllu og ég mæli ekki með notkun þeirra fyrir neinn. Sumir eru kannski hneykslaðir á því að ég sé að kenna slíkan ósóma fyrir framan alþjóð. En það má ekki gleyma að með því að þekkja leiðirnar, þá er auðveldara að benda á þær. Kannski hjálpa þessi góðu ráð einhverjum til að benda á framkomu einhverra fyrirtækja sem gleyma hlutverki sínu sem leiðandi fyrirtæki á fákeppnismarkaði og þurfa vinsamlegar ábendingar neytanda og stjórnvalda til að breyta til betri vegar.

 

Jón Páll Hreinsson

Höfundur er bæjarstjóri í Bolungarvík og situr í stjórn Örnu mjólkurvörur.

 

DEILA