Hafró: mælingum lokið á þremur svæðum

Klúbbur matreiðslumeistara og Íslenska Bocuse d´Or Akademían (f.h.) Frú Eliza Reid, forsetafrú og verndari Kokkalandsliðsins, Andreas Jacobsen, gjaldkeri Klúbbs matreiðslumanna, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Friðgeir Ingi Eiríksson hjá Íslensku Bocuse d´Or Akademíunni og Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, varaformaður Klúbbs matreiðslumeistara

Hafrannsóknarstofnun hefur lokið mælingum fyrir burðarþolsmat í Eyjafirði en matinu sjálfu er ekki lok.  Sama gildir fyrir Mjóafjörð eystri og Norðfjarðarflóa.

Þetta kemur fram í svari Ragnars Jóhannssonar, sviðsstjóra hjá Hafrannsóknarstofnun við ítrekaðri fyrirspurn frá Bæjarins besta um hvar unnið hafi verið að burðarþolsmati fyrir 94 m.kr. styrk frá Umhverfissjóði sjókvíaeldis sem fékkst 2018.

Stofnunin sótti um styrk og fékk til þess að meta burðaþol fjarða og sjókvíaeldissvæða.

Spurningu um það hvernig styrknum hefði verið varið svaraði stofnunin með því að senda sundurliðun kostnaðar upp á 87 milljónir króna:

Flokkur Sum of Kostnaður
HAFRO Afnotagjöld 197.810
HAFRO Almennar rekstrarvörur 45.200
HAFRO Bækur, ritföng og fl. 140.162
HAFRO Blikk- og vélsmiðjur 27.182
HAFRO Byggingavörur almennar 29.043
HAFRO Eignakaup 44.120.195
HAFRO Ferðir, uppihald 1.162.426
HAFRO Fundir, námskeið, risna 65.127
HAFRO Gengistap, endurmat 0
HAFRO Leigugjöld 86.745
HAFRO Notkun véla og flutn.tæk 359.927
HAFRO Orkugjafar 918.103
HAFRO Prentun, póstur, flutn. 1.187.163
HAFRO Sérfræðiþjónusta I 278.134
HAFRO Sími 237.017
HAFRO Sölu- og þjónustugjöld 6.125
HAFRO Tekjur 0
HAFRO Varahlutir og viðhaldsv. 967.864
HAFRO Verkfæri 88.770
HAFRO Verkfæri og áhöld 7.042
HAFRO Verkkaup III 0
HAFRO Vinnukostnaður 35.586.127
HAFRO Vörur til rannsókna 130.819
HAFRO Vörur til útgerðar 917.253
HAFRO Ýmis tæki 438.554
HAFRO Ýmsar sérgreindar vörur 2.430
Samtals 86.999.218

 

Inn í þessa tölu vantar skipatíma sem er bókfærður annars staðar.

Mælingum lokið í Eyjafirði. 

Ekki kom fram fyrra í svari Hafrannsóknarstofnunar hvaða hafsvæði var tekið til burðarþolsmats og var þá ítrekuð spurningin um það hvort Eyjafjörður hafi verið svæðið sem metið var. Þeirri spurninu hefur nú  verið svarað.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra var inntur eftir því á opnum fundi í Eyjafirði um fiskeldi hvort burðarþolsmat væri tilbúið og samkvæmt heimildum Bæjarsins besta fullyrti ráðherrann að svo væri ekki.

Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Akvafuture segir að burðarþolsmat fyrir Eyjafjörð sé tilbúið hjá Hafró. Akvafuture hefur sóst eftir leyfi til fiskeldis í Eyjafirði í hálflokuðum kvíum.

Jón Örn Palsson, fiskifræðingur á Tálknafirði sem einnig hefur unnið að því verkefni segir að árin 2018 og 2019 hafi Hafrannsóknastofnun unnið miklar sjófræðimælingar i Eyjafirði  til þess að meta burðarþol til fiskeldis.

Samkvæmt lögum sem sett voru í fyrra er burðarþolsmat fyrir einstök svæði ekki unnið nema ráðherra kalli eftir því. Málið virðist því nú vera í þeirri stöðu að burðarþolsmatið sé langt komið fyrir ofangreind þrjú svæði en verði ekki klárað nema ráðherrann óski eftir því.

 

 

DEILA