Fugl dagsins: Hrossagaukur

Hrossagaukur (einnig kallaður mýrispýta eða mýrisnípa) er algengur meðalstór vaðfugl sem fer gjarnan huldu höfði.
Hann er í brúnum og ryðrauðum felulitum, nema kviðurinn er hvítur.
Mógular rákir á höfði og eftir endilöngu baki eru einkennandi, auk dökkra koll- og augnráka. Jaðrar stélfjaðranna eru hvítir. Kynin eru eins.

Fluglagið er rykkjótt og sérkennilegt.
Á vorin flýgur hrossagaukur hringflug yfir óðali sínu og hneggjar án afláts.
Erfitt er að koma auga á hann á jörðu niðri, því hann er var um sig og felugjarn.

Þegar hann er fældur flýgur hann snögglega upp með skrækjum og hverfur á braut með hröðum vængjatökum eða steypir sér snöggt til jarðar. Fremur ófélagslyndur fugl.

Hrossagaukur er að mestu farfugl. Fáeinir fuglar hafa vetursetu, þeir finnast í flestum landshlutum. Meginvetrarstöðvarnar eru í Vestur-Evrópu, mest á Írlandi.

DEILA