Bíldudalur: 20 ára afmæli safnsins Melódíur minninganna

Í dag eru rétt 20 ár síðan Jón Kr. Ólafsson söngvari frá Bíldudal opnaði tónlistarsafnið Melódíur minninganna að Tjarnarbraut 5 á Bíldudal. Húsið heitir reyndar Reynimelur og er byggt 1943. Safnið verður opið í dag.

Jón hefur safnað margvíslegum hlutum sem tendir eru tónlist svo sem hljóðfæri, plötur, föt og fleira. Hvítur jakki sem var í eigu Ragnars Bjarnasonar er þar að finna og annar sem Haukur Morthens átti.

Jón Kr. Ólafsson á sjálfur langan feril að baki sem söngvari. Hann var í hljómsveitinni Facon á Bíldudal fyrir 1970 sem meðal annars gaf út sívinsæla hljómplötu.  Hann söng í Reykjavík um árabil meðal annars á Hótel Sögu og Hótel Borg.  Þ

að var svo árið 1983 sem SG-hljómplötur gáfu út stóra plötu með Jóni Kr. þar sem hann syngur kunn einsöngslög við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar.

Á plötuumslaginu skrifaði Svavar Gests þessa umsögn.

„Af þeim 250 hljómplötum sem ég hefi gefið út á tæpum 20 árum er mér sérstaklega eftirminnileg fjögurra laga plata frá árinu 1969 þar sem hljómsveitin Facon á Bíldudal flutti fjögur lög. Hinn mikli áhugi söngvara hljómsveitarinnar fyrir því að gera allt eins vel og framast var mögulegt hreif mig, því hér var um áhugamannahljómsveit að ræða þar sem að hvorki hljóðfæraleikarar eða söngvarar höfðu hlotið menntun á sviði tónlistarinnar. Söngvarinn heitir Jón Kr. Ólafsson. Við urðum kunningjar upp úr þessu samstarfi og hefi ég síðan þá heyrt Jón syngja mörg falleg íslensk einsöngslög og gera þeim frábær skil. Nokkrum þessara laga hefur nú verið safnað saman af hljóðritunum sem til voru og eru þau hér í heild á hljómplötu ásamt tveimur lögum af fyrrgreindri plötu Facon. Mér þykir vænt um að hafa átt aðild að útgáfu plötunnar.“

Tvívegis hélt Jón tónleika í Kaupmannahöfn fyrst 2014 og svo aftur 2017 og þá ásamt sveitunga sínum Ingimar Oddssyni og í fyrra gaf hann út tvo geisladiska. Annar diskurinn hefur að geyma einsöngslög sem Jón syngur og Ingimar Oddsson syngur vinsæl dægurlög á hinum.

Í fyrra hélt Jón lokatónleika í FÍH salnum í Reykjavík fyrir fullu húsi.

Ævisaga Jóns Kr.Ólafssonar, skráð af Bílddælingnum Hafliða Magnússyni sem síðasta rúman áratuginn bjó á Selfossi,  kom út árið 2008 hjá Vestfirska forlaginu.

Jón Kr. með hljómplötu Ingimars Oddsonar, Melódíur minninganna, á safni Jóns, Melodíur minninganna sem opið er daglega á Bíldudal.
Mynd: bb.is

 

DEILA