17. júní á Ísafirði og Hrafnseyri

Í ár verða hátíðahöld á Ísafirði á þjóðhátíðardaginn með öðrum hætti en venjulega, líkt og víða annars staðar.

Dagskráin verður mun minni í sniðum og miðar að því að stórir hópar safnist ekki saman á einum stað. Íbúar eru þó hvattir til að draga fána að húni, fara í sparifötin og gera sér glaðan dag.

Dagskrá á Ísafirði

11:00 Hátíðarmessa í Ísafjarðarkirkju
14:00 Hátíðardagskrá á Silfurtorgi
Lúðrasveit leikur fyrir gesti
Hátíðarræða – Súsanna Björg Ástvaldsdóttir
Hátíðarkór, stjórnandi Tuuli Rähni
Ávarp fjallkonu
14:00 Barnaleikrit í Neðstakaupstað
Kómedíuleikhúsið sýnir leikritið Iðunn og eplin þar sem sagt er frá því er hinn lævísi Loki platar Iðunni út í skóg því þar sé að finna girnileg og gómsæt epli.
Körfuboltadeild Vestra býður upp á ratleik um bæinn frá kl. 13-15 auk þess að vera með söluborð við Silfurtorg og niðri í Neðsta.

Dagskrá á Hrafnseyri

13:00 Hátíðarguðþjónusta
Sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir sóknarprestur á Hrafnseyri þjónar fyrir altari. Undirspil: Jón Gunnar Biering Margeirsson.
14:15 Setning þjóðhátíðar
Tónlist: Jón Gunnar Biering Margeirsson, Dagný Arnalds og Rúna Esradóttir
Hátíðarræða: Guðbergur Bergsson, rithöfundur
15:00 Háskólahátíð í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda

Kynnir á hátíðinni er prófessor Guðmundur Hálfdanarson

Þar að auki verður opnun á myndlistarsýningu sumarsins þar sem sýnd verða verk eftir Margréti Jónsdóttur, leirlistakonu frá Akureyri.

Kaffiveitingar verða í boði á meðan á hátíð stendur en einnig verður hægt að kaupa súpu með brauði.

Boðið er upp á rútuferðir milli Ísafjarðar og Hrafnseyrar, fólki að kostnaðarlausu. Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 11:30 og aftur frá Hrafnseyri kl. 17:00. Vinsamlegast hafið samband við reception@uwestfjords.is eða í síma 450 3040 til að skrá ykkur í rútu.

DEILA