Vesturbyggð mótmælir harðlega stöðvun grásleppuveiða

Patreksfjarðarhöfn. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Bæjarráð Vesturbyggðar  mótmælir harðlega ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að stöðva fyrirvaralaust veiðar á grásleppu frá 3. maí 2020. Er óhætt að segja að ráðherrann fær þungar undirtektir á Vestfjörðum við þessari óvæntu stöðvun veiðanna.

Í bókun bæjarráðsins segir að ákvörðun ráðherra um að stöðva nær fyrirvaralaust veiði á grásleppu hafi alvarleg áhrif á útgerðaraðila í Vesturbyggð. Margir útgerðaraðilar hafi ekki enn hafið veiði, þar sem aðstæður í sjó og vernd lífríkis ræður því hvenær unnt er að hefja veiðarnar.

kostnaður fallinn til en engar tekjur

„Í innanverðum Breiðafirði er t.d. ekki heimilt að hefja veiðar fyrr en 20. maí ár hvert. Útgerðaraðilar í Vesturbyggð voru því margir hverjir ekki byrjaðir en þeir hafa lagt út í kostnað vegna undirbúnings fyrir vertíðina og er fjárhagstjón þeirra aðila því töluvert. Þeir 15 dagar sem mælt er fyrir um í 2. gr. reglugerðar um bann við hrognkelsaveiðum bæta ekki upp þá 44 daga sem útgerðaraðilar við Breiðafjörð gerðu ráð fyrir í upphafi vertíðarinnar.“

Þá segir bæjarráðið  óljóst af orðalagi reglugerðarinnar hvort þeim sem stunda veiðarnar verði heimilt að veiða alla þá 15 daga eða lokað verði á frekari veiði þegar ákveðnu magni afla er náð og að það sé óboðlegt að útgerðaraðilar við Breiðafjörð sem fara síðastir af stað til veiða, lendi í því að bíða í von og óvon eftir því hvernig veiði gangi á öðrum svæðum.

Fleiri veiðidaga 

„Bæjarráð Vesturbyggðar skorar á Hafrannsóknastofnun og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að endurskoða heimild til grásleppuveiða í Breiðafirði og fjölga veiðidögum þar til samræmis við áður gildandi reglugerð. Bæjarráð skorar einnig á Alþingi að núverandi fyrirkomulag á grásleppuveiðum verði endurskoðað svo tryggt verði að þessi staða sem nú er upp geti ekki komið upp aftur.“

DEILA