Varað við hafís undan Vestfjörðum

Landhelgisgæslan varar við hafís undan Vestfjörðum en síðustu daga hefur hafísröndin fært sig nær landi og var ísröndin klukkan 21 á föstudagskvöld í um 30 sjómílna fjarlægð frá Straumnesi.

Á sunnudagskvöld er spáð allhvassri vest-suðvestan átt á svæðinu og gæti ísinn þá færst nær landi. Kortið sýnir ísbrúnina sem varðskipið Týr fylgdi eftir aðfaranótt laugardags. Íshrafl og ísmolar geta verið utan svæðisins. Nokkur skip eru á veiðum við ísröndina.

Meginrönd hafíssins lá um eftirtalda punkta:

67°04´N – 023°40´V
66°59´N – 023°30´V
67°01´N – 023°47´V
66°45´N – 024°20´V
66°49´N – 024°40´V
66°11´N – 026°50´V
66°17´N – 027°24´V      – Þaðan liggur ísinn til vestsuðvesturs

DEILA