Tálknafjarðarskóli fékk styrk úr Barna­menningar­sjóði Ís­lands

Tálknafjarðarskóli í samstarfi við Kómedíuleikhúsið og grunnskóla á sunnanverðum Vestfjörðum fékk úthlutað 2.300.000 fyrir verkefnið “Listasmiðjur með listamönnum úr heimabyggð”.

Verkefnið er ætlað að auka flóru listsköpunar meðal skólabarna á sunnanverðum Vestfjörðum. Það felur í sér samstarf milli grunnskólanna og listamanna sem búa á eða eru ættaðir af svæðinu. Listamennirnir koma heim og taka þátt í verkefninu með því að deila þekkingu sinni og list til barnanna í gegnum almennt skólastarf og í reglulegum listasmiðjum. Verkefnið er sniðið að börnum frá tveimur elstu árgöngum leikskóla til 10. bekkjar grunnskóla. Þá yrði skipt í tvo hópa, leikskóli og 1.-4. bekkur saman og 5.-10. bekkur saman.

Markmið verkefnisins

Að bjóða nemendum uppá fjölbreytt úrval listgreina.
Að opna fyrir fjölbreyttar leiðir fyrir nemendur í listsköpun sinni til að vinna með hugmyndir, varpa fram spurningum, endurspegla og túlka eigin reynslu og annarra.
Að nemendur öðlist aukinn skilning og læsi á eigið samfélag og menningu.
Að nemendur kynnist listamönnum af svæðinu og átta sig á að unnt er að vinna að list á sínu heimasvæði

Grunnþættir menntunar og Barnasáttmálinn

Bæði Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna og grunnþættir menntunar falla vel að verkefninu. Fram kemur í Barnasáttmálanum að börn eigi að fá tækifæri til að tjá sig og að öll börn séu jöfn en jafnframt ekki eins. Þess vegna er mikilvægt að þau fái aukin tækifæri til að læra að tjá sig meðal annars í því listformi sem hentar þeim og leyfa þeim að velja.
Eitt markmiðanna með verkefninu er að nemendur öðlist aukið læsi á samfélagið sitt og undirliggjandi menningu með því að kynnast listamönnunum af svæðinu.

Listamenn fara á milli skólanna fyrir yngri hópinn og fær hver hópur kennslu í sínum skóla en eldri hópurinn sameinast á Tálknafirði. Nemendur í yngri hóp fá fjölbreytta kennslu í öllum listgreinum en eldri hópurinn fær aukinn möguleika á að velja þá listgrein sem þeir hafa áhuga á og fara þannig dýpra í greinina. Kjarnalistgreinarnar eru tónlist og leiklist og verða í boði í öllum lotunum en á móti verður ein önnur listgrein í boði. Sem sagt þrjár listgreinar í hverri lotu.

Aðstandendur verksins eru Birna Hannesdóttir og Kómedíuleikhúsið

Birna Friðbjört S. Hannesdóttir er skólastjóri Tálknafjarðarskóla. Birna er fædd árið 1980 og uppalin á Bíldudal. Birna er með BS gráðu í ferðamálafræði, mastersgráðu í kennslufræði grunnskóla sem mastersgráðu í Forystu og stjórnun, auk þess hefur hún auka diplómu í stjórnun menntastofnana.
Birna hefur starfað við margvísleg störf meðal annars sem verslunarstjóri Veitingastofunnar Vegamóta á Bíldudal, hún hefur unnið að verkefnum í ferðamálafræði þar með talið verkefnið Menning og saga á Bíldudal.

Kómedíuleikhúsið var stofnað árið 1997 og er fyrsta og eina atvinnuleikhús Vestfjarða. Leikhúsið hefur sett á svið 45 leikverk sem eiga það flest sameiginlegt að tengjast sögu Vestfjarða á einn eða annan hátt. Kómedíuleikhúsið hefur einbeitt sér að einleikjum sem hafa vakið mikla athygli bæði hér heima og erlendis. Stofnandi þess er Elfar Logi Hannesson, leikari, sem er fæddur árið 1971 og einnig uppalinn á Bíldudal.

DEILA