Skaginn 3X selur Mowi kælikerfi

Húsnæði Skagans 3X á Ísafirði.

Skaginn 3X sem framleiðir hátæknibúnað fyrir matvælavinnslu hefur selt stærsta framleiðanda Atlantshafslax heimsins, Mowi í Noregi,  íslaust SUB-CHILLING™ ofurkælingarkerfi  í nýja verksmiðju Mowi á Herøy í Noregi.

„Við erum stöðugt að vinna með lausnir sem minnka kolefnisfótspor okkar í gegnum alla virðiskeðjuna. Þetta kerfi er hluti af því sem gerir laxframleiðsluna enn sjálfbærari,“ segir Ørjan Tveiten, svæðisstjóri Mowi Nord.

Framtíðin í kælingu

„Við erum stolt af því að eiga Mowi sem viðskiptavin og hlökkum til að takast á við þetta verkefni. Þetta kemur til með að verða stærsta laxaverksmiðjan sem mun nota þessa kælitækni, en við höfum einkaleyfi á henni,“ segir Magni Veturliðason framkvæmdastjóri Skagans 3X AS, í Noregi. „Þetta er mikilvægur áfangi fyrir okkur þar sem þetta er enn ein staðfestingin á því að framtíðin í kælingu og varðveislu sjávarfangs liggur í þessari nýjung okkar SUB-CHILLING™.“

Íslaus ofurkæling

Umfangsmikil rannsóknar- og þróunarvinna liggur að baki nýrri SUB-CHILLING™ tækni Skagans 3X og fékkst einkaleyfi á henni árið 2019. Með þessari tækni má kæla fisk niður í -1,2 °C án þess að nota nokkurn ís. Fiskurinn sjálfur er nýttur sem kælimiðill og hann helst undir frostmarki lengur en með ískælingu. Þetta skilar betri gæðum til neytenda og bætir allt að 7 dögum við geymsluþol vörunnar.

Sparnaður í flutningi

Kerfið mun hafa mikla þýðingu fyrir sparnað í flutningi auk þess sem vörugæði haldast lengur. Þar sem ís verður óþarfur má flytja allt að 20% meira af vöru fyrir sama verð.

Frábær gæði, frábær ávöxtun

Undanfarin ár hefur ofurkælingartæknin verið í notkun hjá hvítfisk- og laxavinnsluaðilum bæði á Íslandi og í Noregi.  Tæknin hentar afar vel fyrir hvítfisk, vinnslu um borð í skipum og fyrir allar gerðir eldisfisks og sjávarfangs. Kerfið og tæknin hafa nú þegar sannað frammistöðu sína bæði hvað varðar vörugæði og arðsemi. Stefnt er á frekari sölur í Noregi, Evrópu og víðar.

Hættum að flytja ís

„Við sjáum gríðarleg tækifæri hér í Noregi fyrir okkar lausnir þar sem landið er stærsti laxaútflytjandi heims,“ segir Magni. „Árið 2018 voru um 1,4 milljónir tonna af ferskum laxi fluttar út. 80-90% voru fluttar landleiðina og 10-20% með flugi. Gróft áætlað eru því 300 þúsund tonn af ís flutt í bílum og 30 þúsund tonn með flugi árlega, og það er bara í Noregi. Það er hvorki sjálfbært né svarar það kostnaði að flytja ís út á sama verði og fiskinn sjálfan. Með því að fjarlægja ísinn úr kælikeðjunni myndast gífurlegt tækifæri til sparnaðar.“

DEILA