Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir almenningssamgöngur milli byggða tryggðar

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur tryggt almenningssamgöngur milli byggða með auknum fjárveitingum.

Aukinn stuðningur er nauðsynlegur til að bæta rekstraraðilum almenningssamgangna upp tekjutap í kjölfar Covid-19 faraldursins.

Stuðningurinn nær til þjónustu sem nýtur þegar styrkja frá ríkinu, en um er að ræða siglingar Herjólfs, flug Ernis og Norlandair og akstur almenningsvagna milli byggða.

Einnig verður Isavia bætt tekjutap á innanlandsflugvöllum og ferðir Baldurs um Breiðafjörð tryggðar í sumar.

„Það liggur fyrir að rekstrargrundvöllurinn er brostinn. Það stefndi bara í algjört óefni. Það var að mínu mati óhjákvæmilegt að bregðast við ástandinu. Það eru margir sem treysta alveg á þessa þjónustu svo eru landsmenn að leggja af stað inn í frábært ferðasumar innanlands. Þessir hlutir verða bara að vera í lagi,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. „Það er afskaplega mikilvægt að viðhalda öflugum almenningssamgöngum fyrir almenning og atvinnulíf um land allt.

Flugfélagið Ernir flýgur á Bíldudal, Gjögur og Höfn á grundvelli þjónustusamnings við Vegagerðina. Til að bregðast við fækkun farþega hefur ferðum einnig verið fækkað á áfangastaðina.

Siglingar Herjólfs til Vestmannaeyja og Baldurs um Breiðafjörð verða styrkt sérstaklega í sumar vegna fækkunar ferðamanna í kjölfar faraldursins.

DEILA