Rýmri skilyrði fyrir styrkveitingum til kennaranema

Aðgerðir stjórnvalda sem miða að því að fjölga kennurum fela meðal annars í sér styrki til kennaranema og launað starfsnám þeirra. Skilyrði fyrir styrkveitingum hafa nú verið rýmkuð og er námsstyrkur ekki lengur bundinn við skil lokaritgerðar.

„Styrkirnir ná nú til allra kennaranema á lokaári, óháð áherslum þeirra í námi og samræmist það meginmarkmiðum aðgerða okkar um að fjölga kennurum á Íslandi.
Kennaranemar hafa nú val um að ljúka námi sínu án þess að skila stóru lokaverkefni, og geta nú fengið til þess styrk að ákveðnum skilyrðum uppfylltum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Ný lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda sem gildi tóku í ársbyrjun hafa þau áhrif á fyrirkomulag kennaranáms að frá næsta skólaári munu allir kennaranemar hafa val um að ljúka kennsluréttindum með nýrri MT gráðu sem felur ekki í sér 30 ECTS eininga lokaverkefni ef þeir óska þess.
Þá munu nemendur sem hafa meistarapróf í faggrein og innritast í kennaranám einnig geta sótt um námsstyrk.

Ný skilyrði styrkveitinga eru:
• Nemendur á lokaári kennaranáms geta sótt um námsstyrk. Markmið styrksins er að fjölga kennurum, skapa hvata til þess að þeir útskrifist á tilsettum tíma og ráði sig til kennslu. Styrkurinn nemur allt að 800.000 kr. til nemenda í 120 eininga námi og greiðist fyrri helmingurinn þegar staðfesting liggur fyrir að nemandi hafi lokið 90 ECTS einingum í meistaranámi og seinni helmingurinn þegar nemandi hefur lokið námi.
• Nemendur sem hafa meistarapróf í faggrein og innritast í 60 eininga kennaranám til fá réttindi til kennslu geta sótt um námsstyrk sem nemur allt að 400.000 kr. sem greiðist út í einu lagi við námslok.
• Nemandi sækir um styrk til þess háskóla sem hann stundar nám við. Réttur til að sækja um síðari hluta námsstyrksins fellur niður ef kennaranemi lýkur ekki námi innan árs frá móttöku fyrri helming styrksins.

Metaðsókn var í kennaranám í fyrra en boðið er upp á fjölbreytt kennaranám við fjóra háskóla hér á landi; Háskólann á Akureyri, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.

DEILA