Reykhólahreppur kynnir aðalskipulagsbreytingu vegna vindorkugarðs í Garpsdal

Mánudaginn 18. maí næstkomandi kl 12:00 verður haldin kynning um skiplagsbreytingu vegna vindorkugarðs í Garpsdal.

Vegna þeirra takmarkanna sem í gildi vegna COVID verður kynningin haldin sem opinn ZOOM fjarfundur sem áhugasamir geta skráð sig inn á.

Upplýsingar um skráningu verða aðgengilegar á emorka.is og reykholar.is áður en fundurinn hefst.

Gestir munu geta borið fram spurningar og athugasemdir á fundinum og með því að senda inn spurningar á netfangið rr@emp.group

Fundurinn og kynningarefni hans verður síðan aðgengilegt á heimasíða EM Orku (www.emorka.is).

DEILA