Lions gefur fæðingarbekk til HVE á Akranesi

Mynd frá vinstri Þura Björk hjúkrunarframkvæmdarstjóri, Katarina Anna Schumacher, Hrafnhildur Guðmundsdóttir deildarstjóri, Þórný Alda gjaldkeri Lionsklúbbsins Hörpu og Hrund Þórhallsdóttir yfirlæknir. Mynd: aðsend.

Á dögunum færðu Lionsklúbbar á starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands fæðingardeildinni á Akranesi nýjan fæðingarbekk að gjöf. Verðmæti gjafarinnar er um kr. 2.700.000.

Reykhólahreppur, Strandabyggð, Kaldrananeshreppur og Árneshreppur á Vestfjörðum eru á starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands.

Lionsklúbburinn Harpa í Stykkishólmi fékk ábendingu um það í vetur að komið væri að endurnýjun á fæðingarbekkjum deildarinnar en ætla má að vel flestir nýfæddir íbúar svæðisins líti þar fyrst dagsins ljós. Hörpukonur leituðu eftir samstarfi við aðra Lionsklúbba á svæðinu og var því vel tekið.

Gefendur eru eftirtaldir Lionsklúbbar:

 

Lkl. Agla, Borgarnesi

Lkl. Akraness

Lkl. Bjarmi, Hvammstanga

Lkl. Borgarness

Lkl. Búðardals

Lkl. Búðardals, Reykhóladeild

Lkl. Eðna, Akranesi

Lkl. Harpa, Stykkishólmi

Lkl. Hólmavíkur

Lkl. Nesþinga, Hellissandi

Lkl. Ólafsvíkur

Lkl. Rán, Ólafsvík

Lkl. Stykkishólms

Lkl. Þernan, Hellissandi

Elísabet Lára Björgvinsdóttir, formaður Lkl. Hörpu segir um gjöfina:

„Lionsklúbbar eru mikilvægir í sínum samfélögum þegar á þarf að halda og eru kjörorð hreyfingarinnar ,, Við leggjum lið“. Flestir klúbbanna leggja mesta áherslu á að styrkja og styðja við nærsamfélag sitt en Lionshreyfingin á Íslandi er einnig hluti af stærstu hjálparsamtökum í heimi sem hafa yfir sjóðum að ráða sem koma til hjálpar þegar t.d. hamfarir verða í heiminum, nú síðast vegna Covid-19 faraldursins.

Lionsfélagar hafa í fjáröflunarverkefnum sínum notið velvildar og vilja þakka fyrir það traust sem þeim er sýnt. Þetta er skemmtilegur félagsskapur þar sem hjálpsemi og vinátta er undirstaðan. Í Lions öðlast félagar félagslega þjálfun og þar fer einnig fram fræðsla. Ef fólk telur sig geta átt samleið með Lionsklúbbunum þá er um að gera að setja sig í samband við einhvern félaga. Upplýsingar um Lionsklúbba má sjá á síðu hreyfingarinnar lions.is og margir klúbbar hafa einnig facebook síður.“

Það var Þórný Alda Baldursdóttir, gjaldkeri Lionsklúbbsins Hörpu sem afhenti gjöfina fyrir hönd klúbbanna.

 

DEILA