Kómedíuleikhúsið fær veglegan styrk

Samuel Beckett.

Kómedíufélagið hefur fengið styrk frá Leiklistarráði að upphæð 3.940.000 kr til þess að setja up leikritið Beðið eftir Beckett.

Elfar Logi Hannesson forsvarsmaður Kómedíuleikhússins segir að leikurinn verði frumsýndur í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal í lok ágúst. Eftir það verður farið í leikferð um landið og sýnt fyrir norðan, austan og sunnan. Hann segir að svo sannlega sé þetta mikil viðurkenning fyrir Kómedíuleikhúsið og atvinnuleiklist á landsbyggð. „Við smælum allan hringinn“ sagði Elfar Logi.

Veittir voru styrkir að upphæð 95 milljónum króna til 30 verkefna sem skiptast þannig: níu leikverk, fjögur sviðsverk fyrir börn, þrjú söngverk, fimm dansverk, tvær sirkussýningar, tvær hátíðir, fimm rannsóknar- og námskeiðsverkefni.

Í janúar fékk Kómedíuleikhúsið 3.190.000 kr styrk frá Leiklistarráði til verksins Bakkabræður.

DEILA