Aukinn styrkur til flugs og ferju á Vestfjörðum

DCIM100MEDIADJI_0030.JPG

Ríkið hefur aukið stuðning  við nauðsynlega samgönguþjónustu sem nýtur þegar styrkja frá ríkinu. Um er að ræða siglingar Herjólfs, flug Ernis og Norlandair og akstur almenningsvagna milli byggða. Einnig verður Isavia bætt tekjutap á innanlandsflugvöllum og ferðir Baldurs um Breiðafjörð tryggðar í sumar.

Flugfélagið Ernir flýgur til Bíldudals og Gjögurs á grundvelli þjónustusamnings við Vegagerðina. Til að bregðast við fækkun farþega hefur ferðum einnig verið fækkað á áfangastaðina. Siglingar Baldurs um Breiðafjörð verða styrktar sérstaklega í sumar vegna fækkunar ferðamanna í kjölfar faraldursins. Ferjan Baldur siglir milli Brjánslækjar og Stykkishólms og þjónar Flatey í Breiðafirði. Ferjan hefur einnig fengið stærra hlutverk í flutningum milli byggða vegna minni strandsiglinga.

„Það liggur fyrir að rekstrargrundvöllurinn er brostinn. Það stefndi bara í algjört óefni. Það var að mínu mati óhjákvæmilegt að bregðast við ástandinu. Það eru margir sem treysta alveg á þessa þjónustu svo eru landsmenn að leggja af stað inn í frábært ferðasumar innanlands. Þessir hlutir verða bara að vera í lagi,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. „Það er afskaplega mikilvægt að viðhalda öflugum almenningssamgöngum fyrir almenning og atvinnulíf um land allt. Raunar má telja að mikilvægi þeirra aukist enn frekar í framhaldi af faraldrinum og að fleiri muni kjósa að nýta sér þjónustu almenningsvagna, ferja og flug á ferðum sínum.“

Covid-19 faraldurinn hefur þegar haft víðtæk áhrif á rekstur almenningssamgangna síðustu mánuði og áhrifanna mun gæta áfram í sumar með fækkun erlendra ferðamanna sem hafa staðið undir umtalsverðum tekjum yfir sumarmánuðina. Gripið hefur verið til aðhaldsgerða þar sem hægt er og þjónustustig aðlagað að nýjum aðstæðum. Tekjutapið vegur þó svo þungt að rekstrargrundvöllur er brostinn ef ekki væri fyrir frekari stuðning ríkisins.

DEILA