Vigdísarverðlaunin veitt í fyrsta sinn

Í tilefni af stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur í dag og þess að í vor verða liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar hafa íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur ákveðið að efna til alþjóðlegra verðlauna í nafni Vigdísar.

Verðlaunin verða veitt árlega einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu menningar og þá einkum tungumála. Tilgangurinn með verðlaununum er að heiðra og vekja athygli á lofsverðu framlagi Vigdísar til tungumála og menningar, en eins og alþjóð veit hafa þessi málefni ætíð verið henni afar hugleikin. Sem velgjörðarsendiherra tungumála hjá UNESCO, Mennta-, menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna, hefur Vigdís lagt ríka áherslu á að efla tungumál fámennra málsamfélaga og standa þannig vörð um þann menningararf alls mannkyns sem felst í fjölbreytni tungumála.

Jonhard Mikkelsen

Fyrsti handafi Vigdísarverðlaunanna er færeyski málvísindamaðurinn, kennarinn og útgefandinn Jonhard Mikkelsen, og  hlýtur hann verðlaunin fyrir einstakt framlag sitt til að efla og þróa færeyska tungu bæði inn á við og út á við. Jonhard Mikkelsen er fæddur í Vestmanna árið 1953, þar sem hann er búsettur ásamt fjölskyldu sinni. Jonhard nam ensku við Árósarháskóla og færeysku við Fróðskaparsetur Færeyja.

 

Jonhard hefur kennt færeysku á mennta- og háskólastigi, haft með höndum námsstjórn í færeysku fyrir framhaldsskóla, átt sæti í Málráði Færeyja og tekið þátt í blaðaútgáfu, en hann var ritstjóri helgarblaðsins Fregnis á árunum 2001-2004. Árið 1993 stofnaði hann forlagið Sprotan og frá árinu 2016 hefur hann helgað því krafta sína. Forlagið Sprotin hefur m.a. staðið fyrir útgáfu kennslubóka, fræðsluefnis og þýddra skáldverka. Alls hafa komið út um 400 bækur hjá forlaginu.

Með störfum sínum hefur Jonhard Mikkelsen lagt drjúgan skerf til að styrkja færeyska tungu og festa hana í sessi sem lifandi tungumál á tímum alþjóðavæðingar. Verðlaunaupphæðin er 6 milljónir íslenskra króna.

 

Í úthlutunarnefnd verðlaunanna sátu Guðmundur Hálfdanarson, formaður, tilnefndur af rektor Háskóla Íslands, Auður Hauksdóttir, tilefnd af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, og Sveinn Einarsson, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðherra, en Magnús Diðrik Baldursson starfaði með nefndinni.

DEILA