Vestfirðir: Kona úr bakvarðasveit handtekin

Kona úr bakvarðasveit Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sem starfað hefur í vikunni á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík var handtekin í morgun. Hún er grunuð um að hafa falsað skjöl um menntun og starfsleyfi sín sem sjúkraliði.

Þá er hún grunuð um að hafa stolið eða reynt að stela lyfjum. Konan var færð í fangageymslur á Ísafirði þar sem tekið var stroksýni vegna mögulegs Covid-19 smits.

Í tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða til nokkurra fjölmiðla kemur fram að rannsókn málsins sé á byrjunarstigi. Segir ennfremur að ábendingar hafi borist í gærkvöldi og í nótt um að ekki væri allt með felldu og var strax byrjað að grípa til aðgerða. Málið var tilkynnt til lögreglu í morgun og var hún handtekin í kjölfarið.

Þá mun koma fram að ekki sé útilokað að konan hafi verið útsett fyrir smiti af Covid-19 og því verði gripið til víðtækra varúðarráðstafana, til dæmis voru lögreglumenn í morgun í hlífðarfötum. Unnið er að því að tryggja að starfsemi hjúkrunarheimilisins raskist ekki og að öruggt sé að aðrir meðlimir í bakvarðasveit starfi áfram.

DEILA