Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar leitaði tveggja fjórhjólamanna við Drangjökul

Aðfaranótt skírdags leitaði þyrlusveit Landhelgisgæslunnar tveggja fjórhjólamanna við Drangjökul.

Þegar æfingu þyrlusveitar og áhafnar varðskipsins Þórs var ný lokið í Ísafjarðardjúpi barst beiðni frá fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra um að þyrla Landhelgisgæslunnar færi til leitar að fjórhjólamönnunum sem áttu að hafa farið frá Steingrímsfjarðarheiði í átt að Drangajökli, fyrr um daginn.

Björgunarsveitir á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar voru einnig kallaðar út til leitar.

Flogið var frá Ísafirði yfir Snæfjöll, inn Hrafnsfjörð yfir Skorarheiði og niður í Furufjörð og inn í Reykjafjörð.

Leitað var á Fossadalsheiði, ofan í Bjarnarfjörð, inn að Drangajökli og til suðausturs um heiðina. Aðstæður til leitar voru góðar með nætursjónaukum sem alla jafna eru notaðir við leit sem þessa í myrkri.

Eftir tæplega klukkustundar leit var upplýst að mennirnir væru fundnir og hélt þyrla Landhelgisgæslunnar þá aftur til Reykjavíkur.

DEILA