Sprotasjóður úthlutar 3 mkr til Vestfjarða

Tálknafjarðarskóli. Mynd: bb.is

Tilkynnt hefur verið um úthlutun ársins 2020 úr Sprotasjóði Menntamálaráðuneytisins og munu 26 verkefni hljóta styrki að þessu sinni. Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga.  Heildarupphæð styrkjanna eru rúmlega 56 milljónir kr. Áherslusvið styrkveitinganna nú eru á verkefni sem hafa tengingu við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

„Umsóknirnar bera vott um þá grósku sem einkennir íslenskt skólastarf, þarna eru fjölmörg spennandi verkefni sem án efa munu auðga nám og tækifæri bæði nemenda og kennara,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Alls bárust 46 umsóknir um styrki úr sjóðnum þegar auglýst var fyrr í vetur og var heildarupphæð umsóknanna rúmar 155 milljónir kr.

Tveir styrkir til Vestfjarða

Grunnskólinn á Hólmavík fær 1.300.000 kr til verkefnisins stærðfræði með augum heimsins. Tálknafjarðarskóli fær 1.620.000 kr til þess að gera heildstætt nemendamiðað nám með áherslu á heimsmarkmið SÞ. Verkefnið verður unnið í samstarfi við Bíldudalsskóla.

DEILA