Smit á Flateyri- hertar aðgerðir á norðanverðum Vestfjörðum

Frá Flateyri í desember. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Fimm ný smit komu upp á síðasta sólarhring og tengjast þau öll norðanverðum Vestfjörðum. Smitrakning stendur yfir og beðið er niðurstöðu nokkurs fjölda sýna sem tekin hafa verið. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðarstjónar almannavarna nú rétt áðan.

Samkvæmt heimildum Bæjarins besta hefur eitt smit komið upp á Flateyri og í gær voru tekin sýni á Þingeyri.

Agerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum í samráði við sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur ákveðið að bregðast enn frekar við COVID-19 á Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og Súðavík með hertum aðgerðum, eins og hér greinir:

• Leik- og grunnskólum á Suðueyri, Flateyri, Þingeyri og Súðavík verði lokað frá og með morgundeginum 6. apríl 2020. Þó skulu börn á forgangslistum fá vistun á leikskólum og 1. og 2. bekkjum grunnskóla.

• Samkomubann verði miðað við 5 manns (þetta á þó ekki við um fjölskyldur sem búa á sama heimili).

• Fjöldi viðskiptavina í stærri verslunum (>150 fermetrar) sé að hámarki 30 á hverjum tíma.

Hvatt er til þess að fólk haldi sig heima, haldi samskiptafjarlægð, takmarki ferðir og fylgi leiðbeiningum yfirvalda.

Þeim vinnustöðum eða hópum sem telja sig þurfa undanþágu er bent á að sækja um slíkt hjá heilbrigðisráðuneytinu.

 

DEILA