Mikill samdráttur í sölu á eldsneyti

Sala á eldsneyti í lok mars 2020 var 42% lægri en meðal dagleg sala í mars 2019.

Meðal sala sem af er apríl er 68% lægri en meðal dagleg sala í apríl í fyrra.

Samkomubann var sett á 4. mars 2020, en í aðdraganda þess var sala eldsneytis um 8% hærri en meðal salan í mars 2019. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands.

Dagana fyrir samkomubann voru rúm 9% af sölu á erlend greiðslukort, en um miðjan mánuðinn var hlutur þeirra undir 1% af heildar sölu.

Eftir að samkomubann var sett á dró úr sölu eldsneytis nokkuð stöðugt á milli vikna, en nokkur aukning í sölu mælist í byrjun apríl.

Umferð á hringveginum minnkaði um þriðjung

Þá kemur ennfremur fram að umferð á hringveginum minnkaði um þriðjung í mars samanborið við sama mánuð í fyrra, að því er fram kemur í skammtímahagvísum ferðaþjónustu á vef Hagstofunnar.

Samkvæmt umferðarteljurum Vegagerðarinnar dróst umferð saman um 31 prósent á Suðurlandi og Vesturlandi, um 33 prósent á Austurlandi og 36 prósent á Norðurlandi.

DEILA