Isabel kosin forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands

Ísfirðingurinn Isabel Alejandra Díaz var í gærkvöldi kjörin nýr forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ). Kosningin fór fram á sérstökum kjörfundi ráðsins í gegnum fjarfundabúnað en Isabel mun formlega taka við stöðunni eftir skiptafund sem haldin verður í maí. Isabel er fyrsti einstaklingurinn af erlendum uppruna til að gegna stöðu forseta Stúdentaráðs frá upphafi, en ættir Isabel má rekja til Mið-Ameríku ríkisins El Salvador. 100 ár verða frá stofnun Stúdentaráðs nú í desember 2020.

Isabel var í 1. sæti á framboðslista Röskvu í kosningum meðal stúdenta til háskólaráðs HÍ og hlaut hún kjör með flest greidd atkvæði nú í mars sl. Hún mun því sitja í háskólaráði samhliða störfum sínum sem forseti Stúdentaráðs. Isabel hefur setið sem varafulltrúi í Stúdentaráði og sviðsráðum síðastliðin tvö ár. Starfsárið 2018-2019 sinnti hún stöðu varafulltrúa á Hugvísindasviði og síðastliðið ár á Félagsvísindasviði.

 

“Ég er spennt fyrir komandi tímum og full af eldmóði til að takast á við þessa krefjandi tíma í hagsmunabaráttu stúdenta. Erfið staða stúdenta á vinnumarkaði, fjármögnun háskólastigsins, staða skrásetningargjalda í HÍ, lánasjóðsmál og geðheilbrigðismál eru dæmi um áskoranir sem ég hlakka til að takast á við.” segir Isabel.

Isabel stefnir á að útskrifast með BA gráðu í stjórnmálafræði og spænsku sem aukagrein frá Háskóla Íslands í júní 2020. Isabel hefur starfað hjá Endurmenntun HÍ samhliða námi, þar áður hjá UNICEF og var verkefnastýra Tungumálatöfra 2017-2018, sumarnámskeiðs fyrir tví- og fjöltyngd börn á Ísafirði. Þá útskrifaðist Isabel frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 2016 og hlaut verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn í tungumálum.

 

DEILA