Fleiri börn fæddust í fyrra en árið 2018

Frá Náttúrubarnaskólanum. Mynd: Dagrún Ósk Jónsdóttir

Fjöldi fæddra barna á Íslandi árið 2019 var 4.452 sem er fjölgun frá árinu 2018 þegar 4.228 börn fæddust. Alls fæddust 2.267 drengir og 2.185 stúlkur, en það jafngildir 1.038 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum.

Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið.

Árið 2019 var frjósemi íslenskra kvenna 1,745 börn á ævi hverrar konu og jókst hún örlítið frá árinu 2018, en þá var frjósemi 1,707 og hafði þá aldrei verið lægri frá því að mælingar hófust árið 1853.

Frá árinu 1932 hefur aldursbundin fæðingartíðni alltaf verið hæst í aldurshópunum 20-24 ára og 25-29 ára, en árið 2019 varð sú breyting að fæðingartíðnin reyndist hæst meðal aldurshópsins 30-34 ára. Á þessu aldursbili fæddust 111,9 börn á hverjar 1.000 konur árið 2019, en 106,9 á aldursbilinu 25-29 ára. Fæðingartíðni mæðra undir tvítugu var í fyrra 4,3 börn á hverjar 1.000 konur. Það er afar lágt í samanburði við tímabilið 1961-1965 þegar hún fór hæst, en þá fæddust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tvítugu.

Meðalaldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síðustu áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn að jafnaði síðar á ævinni en áður. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratuginn hefur meðalaldur farið hækkandi og var 28,6 ár í fyrra.

DEILA