Flateyri: Vestfiskur kaupir húsnæði undir vinnslu

Fyrirtækið Vestfiskur á Flateyri hefur fest kaup á húsnæði Ísfells á Flateyri og fær það afhent 1. maí. Reyndar er það dótturfyrirtæki Vestfisks sem er kaupandi og  heitir það ISC Seafood. Næsta skref er að fara í það að gera húsið klárt.

Húsnæðið er ætlað fyrir vinnslu Vestfisks á Flateyri á sæbjúgum og roði að sögn Gunnars Þór Gunnarssonar framkvæmdastjóra Aurora Seafood sem er  eitt af þeim fyrirtækjum sem standa að atvinnuuppbyggingu á Flateyri í samstarfi við Byggðastofnun.

Nýlega var keyptur báturinn Tindur ÍS sem á að veiða  byggðakvótann og sæbjúgun og hafa síðustu vikur verið notaðar til þess að gera bátinn kláran á trollveiðar. Gunnar Þór segir að veiðar hefjist innan skamms, jafnvel á næstu dögum.

DEILA