Dregið úr takmörkunum á samkomum og skólahaldi frá 4. maí

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.

Heilbrigðisráðherra gerði í dag grein fyrir ákvörðun sinni um tilslakanir á takmörkunum á samkomum og skólahaldi.

Helstu breytingar sem verða 4. maí næstkomandi:

Fjöldamörk samkomubanns miðast við 50 einstaklinga í stað 20 áður. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast óbreyttar.

Skólastarf í leik- og grunnskólum verður með eðlilegum hætti.

Í framhalds- og háskólum gildir meginreglan um hámark 50 einstaklinga í sama rými.

Ýmis þjónusta: Hárgreiðslustofur, nuddstofur, sjúkraþjálfun, snyrtistofur, söfn og sambærileg starfsemi geta hafið starfsemi en halda skal 2 m fjarlægð milli viðskiptavina eins og kostur er.

Heilbrigðisþjónusta: Öll heilbrigðisstarfsemi sem ekki felur í sér valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir verður heimil.
Tannlækningar verða einnig heimilar.

Skipulagt íþróttastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:
· Ekki fleiri en 50 einstaklingar verða saman í hóp.
· Halda skal tveggja metra fjarlægð eftir því sem það er unnt, einkum hjá eldri börnum.

Annað skipulagt íþróttastarf er heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:
· Ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman.
· Snertingar eru óheimilar og halda skal tveimur metrum á milli einstaklinga.
· Notkun á sameiginlegum búnaði skal haldið í lágmarki en annars skal sótthreinsa hann á milli notkunar.

Nokkur atriði sem haldast óbreytt:
· Undanþágur fyrir efnahagslega mikilvæg fyrirtæki verða óbreyttar.
· Líkt og hingað til verður heimilt að taka á móti 100 einstaklingum í matvöruverslunum og lyfjaverslunum hverju sinni að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
· Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar.
· Reglur um skemmtistaði, krár, spilaasali og svipaða starfsemi verða óbreyttar og slíkir staðir því áfram lokaðir.
· Fyrirmæli landlæknis frá 23. mars sl. um valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir haldast óbreytt.

DEILA