Covid – 19 á Vestfjörðum.

Aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum hefur ákveðið í samráði við sóttvarnalækni að halda óbreyttu fyrirkomulagi
sóttvarna á norðanverðum Vestfjörðum a.m.k. til 26. apríl nk.

Í því felst að:

Leik- og grunnskólar á norðanverðum Vestfjörðum verði áfram lokaðir. Þó skulu börn á forgangslistum fá vistun á leikskólum og 1. og 2. bekkjum grunnskóla.

Samkomubann verði miðað við 5 manns (þetta á þó ekki við um fjölskyldur sem búa á sama heimili).

Fjöldi viðskiptavina í stærri verslunum (>150 fermetrar) sé að hámarki 30 á hverjum tíma.

Það er mat aðgerðastjórnar að ofangreindar aðgerðir séu að skila árangri. Enn eru þó að greinast ný smit og allmargir einstaklingar í samfélaginu eru veikir. Það er því afar brýnt að fólk haldi sig heima, haldi samskiptafjarlægð, takmarki ferðir sínar og fylgi leiðbeiningum þessum.

Rauðikrossinn, í síma 1717, veitir aðstoð þeim sem eru í sóttkví, einangrun eða á annan hátt eiga erfitt um vik

Aðgerðastjórn fundar og metur stöðuna á degi hverjum.

Aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum
11. apríl 2020.

DEILA