Átakið: fögur er Víkin af stað aftur

Bolungarvíkurkaupstaður heldur áfram með almennt umhverfisátak í bænum undir heitinu Fögur er Víkin, #fogurervikin en átakinu var hleypt af stokkunum í fyrra.

Sveitafélagið hvetur bæjarbúa til að líta í kringum sig eftir veturinn, snyrta og laga það sem betur má fara.

Gaman væri ef bæjarbúar gætu tekið fyrir-og-eftir-mynd og sett innlegg á samfélagsmiðla undir myllumerkinu – #fogurervikin – eða bara fallega mynd af bænum nú eða húsinu sínu.

Minnum einnig á Facebook-síðuna Kerfilinn burt úr Bolungarvík.

Tilvalin verkefni

  • Tína upp rusl á víðavangi
  • Salta gangstéttar
  • Taka upp kerfil

 

Salt er hægt að fá á hafnarvoginni.

Einnig er tilvalið að snyrta í görðum og verður garðaúrgangur tekinn

  • mánudaginn 27. apríl og
  • þriðjudaginn 28. apríl.

 

Garðaúrgang og rusl má skilja eftir í böndum eða pokum á gangstéttum og starfsfólk bæjarins mun fjarlægja hann.

DEILA