Andlát: sr Einar jónsson

Látinn er sr. Einar G. Jónsson, sem var meðal annars sóknarprestur í Árnesi á Ströndum. Hans er minnst á heimasíðu kirkjunnar :

Sr. Einar fæddist á Kálfafellsstað í Borgarhafnarhreppi, Austur-Skaftafellssýslu, 13. apríl 1941. Foreldrar hans voru hjónin sr. Jón Pétursson, sóknarprestur og prófastur á Kálfafellsstað, og Þóra Einarsdóttir, húsfreyja, og síðar formaður og framkvæmdastjóri fangahjálparinnar Verndar í Reykjavík.

Sr. Einar var vígður 11. júní 1972 til Söðulsholtsprestakalls (áður Miklaholtsprestakall) á Snæfellsnesi. Árið 1982 var hann skipaður sóknarprestur í Árnesprestakalli á Ströndum og fór þaðan árið 1989 á heimaslóðir sínar, Kálfafellsstað, og lauk þar prestsþjónustu sinni árið 2011, sjötugur að aldri – farsæll sveitaprestur hátt í fjóra áratugi.

Eins og svo margur sveitapresturinn fékkst sr. Einar við kennslu í prestaköllum þeim er hann þjónaði. Jafnframt gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum í prestaköllum sínum. Hann tók virkan þátt í samfélagi sóknarbarna sinna og iðulega kallaður til þar sem tónlistar var þörf enda hann mikill tónlistarmaður, lék á harmóníum, píanó og harmonikku. Sjálfur lék hann oft á harmóníum Rauðamelskirkju þegar hann hafði þar guðsþjónustur um hönd og enginn var organistinn. Myndin sem er hér að ofan er tekin í Rauðamelskirkju fyrir fáeinum árum en sú kirkja var honum jafnan kær.

Sr. Einar var drengur góður, þægilegur í viðkynningu og greiðvikinn. Um margt skemmtilega sérlundaður og sál sveitamannsins var sterkari í honum en borgarbarnsins. Í honum var að finna næma listræna taug sem kom einkar vel fram í tónlistargáfu hans. Hann var skrafhreifinn og glaður í viðkynningu, hafði sig lítt á oddi í fjölmenni en naut sín í litlum hópum, yfirlætislaus maður og spakmenni. Mildur í svörum og orðgætinn. Sr. Einar var fróður um gamla tíð og lét hversdagslegan eril nútímans ekki hreyfa svo mjög við sér. Hann var afar trygglyndur öllum sóknarbörnum sínum sem mátu hann enda mjög mikils.

Sr. Einar Guðni Jónsson er kvaddur með virðingu og þökk. Guð blessi minningu hans.

DEILA