Viðbrögð stjórnvalda

Ríkisstjórnin bregst við þeim aðstæðum sem uppi eru núna í þjóðfélaginu og ræðst nú í sérstakt tímabundið fjárfestingaátak til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs.

Þar eru 15.000 m. kr fjárheimild til átaksins verði skipt á einstök fjárfestingaverkefni um allt land. Þetta miðast við verkefni sem eru tilbúin til framkvæmda og miðað er við að hefist fyrir 1. september á þessu ári .

Þarna er verið að horfa til verkefna um endurbætur fasteigna, nýbyggingar, samgöngumannvirki, orkuskiptaverkefni og rannsóknir og nýsköpun. Auk þess eru verkefni í starfrænt Ísland og upplýsingatækniverkefni. Þessi verkefni eru til viðbótar við þau verkefni sem eru annars á dagskrá og halda sínu striki.

 

Verkefni á Vestfjörðum

Í þessum fjárfestingatillögum sem ráðast á í er að finna ýmis verkefni á Vestfjörðum og m.a:

  • Malbikun bílastæðis við flugvöllinn á Ísafirði
  • Landfylling á Bíldudal
  • Vegaframkvæmdir vegna tengivega. Fjárveiting dreifist um allt land í hlutfalli við þá tengivegi sem eftir eru á hverju svæði með malarslitlagi.
  • Ýmsar aðgerðir í viðhaldi á vegum
  • Dýpkun í Súðavíkurhöfn
  • Bjarnadalsá í Önundarfirði og Botnsá í Tálknafirði undir verkefninu að breikka einbreiðar brýr á vegakerfinu
  • Ísland ljóstengt, aukið átak. Markmiðið er að nær öll heimili og fyrirtæki í dreifbýli hafi aðgang að ljósleiðaratengingu.
  • Í samræmi við stjórnarsáttmála er stefn að átaki í fráveitumálum í samtarfi við sveitarfélögin.
  • Aukið átak til bindingar kolefnis með skórækt og landgræðslu.
  • Átaksverkefni í menningu og listum með styrkveitingum til menningar- og listverkefninum.
  • Flýta framkvæmdum við ofanflóðavarnir á yfirstandandi ári eins og á Patreksfirði.
  • Óveðurstengd verkefni hjá Vegagerðinni
  • Upplýsingagátt vega , upplýsingakerfi um veður og sjólag.

Í undirbúningi er stærra fjárfestingaátak sem ætlunin er að taki til áranna 2021-2023. Það eru mörg verkefni og það eru verkefni sem þarfnast meiri undirbúnings heldur en að hægt sé að hrinda þeim í framkvæmd á þessu ári.

 

 

Halla Signý Kristjánsdóttir

Þingmaður Framsóknarflokkins.

DEILA