Vel sóttur stofnfundur Pírata í Norðvesturkjördæmi

Stofnfundur PíNK – Pírata í Norðvesturkjördæmi var haldinn á veitingastaðnum Grand-Inn á Sauðárkróki um síðustu helgi.
Fundurinn var vel sóttur og ljóst að áhugi á starfi og stefnu Pírata fer vaxandi í kjördæminu.
Halldóra Mogensen þingmaður Pírata stýrði fundi og eftir formlega stofnun var ráðist í kosningar í fyrstu stjórn félagsins en hana skipa:

Sunna Einarsdóttir – formaður
Pétur Óli Þorvaldsson – gjaldkeri
Jónas Lövdal
Jóhann Hjörtur Stefánssons Bruhn
Magnús Kr Guðmundsson
Aðalheiður Alenu Jóhannsdóttir

Að stjórnarkjöri loknu skiptist fólk í umræðuhópa þar sem fjallað var um heilbrigðiskerfið, frelsi til búsetu, undirstöður atvinnuvegar og innviðaöryggi.

Þá tóku ræðumenn kvöldsins við en það voru þau Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata sem fjallaði í ræðu sinni um hugmyndafræðilegan bakgrunn Píratarhreyfingarinnar og skaðsemi þess valdaójafnvægis sem Píratar berjast gegn og Eva Pandora Baldursdóttir fyrrv. þingmaður Pírata sem sagði frá sínum fyrstu skrefum hjá Pírötum en hún bauð sig fram í prófkjöri í Norðvesturkjördæmi árið 2016 og fór inn á þing fyrir Pírata sama ár.
Þegar hún bauð sig fram í prófkjörinu var markmiðið að kynnast flokknum betur og áttu þetta að vera hennar fyrstu skref til að taka þátt í grasrótarstarfinu. Hún bjóst ekki við að ná jafn hátt á listanum og raun bar vitni, þar sem hún var ný og óþekkt innan flokksins en lagði áherslu á að einmitt þessi andi væri það sem væri svo frábært við Pírata; að hver sem er getur fengið tækifæri til að taka þátt og hafa áhrif ef hann hefur áhuga.

Eftir fund var fyrsti stjórnarfundur PíNK boðaður þar sem stjórn skipti með sér verkum og hófst handa við að leggja grunn að því mikla og góða starfi sem framundan er hjá félaginu.

DEILA