Snerpa: framlengja tilboð um frítt inntaksgjald

Nú þegar komið er á samkomubann og fólk er hvatt til að halda fjarlægð er fjarvinnu í gegnum netið kostur sem margir eru að nýta sér. Til að koma til móts við sína viðskiptavini, hafa sumar netþjónustur fellt niður gagnamagnsmælingu á innanlandsumferð til að losa fólk undan því að hafa áhyggjur af aukinni netnotkun sem því fylgir.

Snerpa vill koma því á framfæri að innanlandsumferð á þjónustuleiðum Snerpu er og hefur alltaf verið ómæld þannig að notendur þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur að þessu leyti.

Snerpa hefur  ákveðið að framlengja tilboð um niðurfellingu inntaksgjalds hjá þeim sem eiga nú kost á ljósleiðara og geta þeir sem hafa hugsað sér að nýta tilboðið flett upp heimilisfanginu sínu á https://www.snerpa.is/einstaklingar/internet/ og lagt inn pöntun.

DEILA