Sækir ráð í sauðahjörð

Skjaldfannardalur.

Vestfirsku hagyrðingarnir Indriði á Skjaldfönn og Jón Atli Reykhólajarl eiga það til að senda hvor öðrum vísnasendingar yfir fjöllin í gegnum netið. Eru þeir ekki alltaf að strjúka hvor öðrum.

Í dag settist Indriði við tölvuna í Skjaldfannardal  og orti um Jón.

 

Víst mér þykir vænt um Jón.

Vil honum allt hið besta.

En að vera fjandans flón

finnst mér drenginn lesta.

 

Jón Atli svaraði að bragði:

Hoppar enn um holt og börð
hans þó leggur fúni.
Sækir ráð í sauðahjörð
sem er út á túni.

DEILA