Pólskir nemendur fái kennslu á móðurmáli sínu

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Dariusz Piontkowski menntamálaráðherra Póllands, undirrituðu á mánudaginn samstarfsyfirlýsingu íslenskra og pólskra menntamálayfirvalda um að efla frekara samstarf landanna á sviði menntamála. Undirritunin fór fram í Varsjá í Pólland.

 

Með yfirlýsingunni er lögð áhersla á að nemendur af pólskum uppruna hafi aðgang að menntun á móðurmáli sínu, hvatt er til aukins samstarfs menntastofnana og samskipta ungmenna, kennara og skólastarfsfólks. Samhliða undirrituninni var tilkynnt að pólsk yfirvöld áforma að opna pólskuskóla á Íslandi, þar sem m.a. mun fara fram móðurmálskennsla fyrir pólsk-íslenska nemendur um helgar.

 

„Vellíðan og árangur nemenda í menntakerfinu okkar er mér hjartans mál og því er þessi samstarfsyfirlýsing afar ánægjuleg. Um 3000 börn af pólskum uppruna ganga í íslenska skóla og við þurfum að styrkja stöðu þeirra á öllum skólastigum. Góð móðurmálskunnátta er forsenda þess að barn nái góðum tökum á öðru tungumáli,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands eru um 50 þúsund innflytjendur á Íslandi og þar af um 19.000 Pólverjar. Á Vestfjörðum er hlutfallið næsthæst á landinu eða um 18% íbúanna eða 1.300 manns. Ekki er vitað hve margir þeirra eru Pólverjar en þeir gætu verið um 500 – 600 ef miðað er við hlutfall Pólverja af innflytjendum á landsvísu.

DEILA