MMR: fylgi eykst við Sjálfstæðisflokkinn og ríkisstjórnina

Fylgi við ríkisstjórnina mælist 52,9% í nýrri könnun MMR, sem birt var í dag og hækkar um rúm fjórtán prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 38,8%.

Þá eykst fylgi við Sjálfstæðisflokkinn um 6% og mælist 27,4%. Fylgi Miðflokksins minnkar úr 12,6% í 10%. Fylgi annarra flokka breytist lítið.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 27,4% og mældist 21,3% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,7% og mældist 15,4% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 10,2% og mældist 10,7% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,0% og mældist 12,6% í síðustu könnnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 9,8% og mældist 9,9% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,7% og mældist 10,5% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,1% og mældist 7,4% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,7% og mældist 4,7% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,7% og mældist 4,8% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,7% samanlagt.

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.034 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 18. til 20. mars 2020

DEILA