Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Stellu í orlofi á föstudaginn

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Stellu í orlofi næstkomandi föstudag.

Í tilkynningu frá Leikfélagi Hólmavíkur segir að Stella sé Íslendingum að góðu kunn og  flestir kunni  fjölmarga frasa úr myndinni utanbókar enda er kvikmyndin samofin þjóðarsálinni. Gunnar Gunnsteinsson og Leikfélag Hólmavíkur hafa nú gert leikgerð fyrir svið eftir kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur en Gunnar leikstýrir einmitt sýningunni.

Sýningin er afrakstur samstarfs Leikfélags Hólmavíkur og Grunn- og tónskólans á Hólmavík, leikarar og aðstandendur sýningarinnar eru því á öllum aldri auk þess sem ungmenni sjá um lifandi tónlistarflutning.

 

Sýnt verður í Félagsheimilinu á Hólmavík 6. og 7. mars og  2., 5. og 13. apríl en janframt verður farið í leikferð á Hvammstanga þann 28. mars.

Við lofum mikilli gleðisprengju segir Esther Ösp formaður Leikfélags Hólmavíkur.

Free entrance for those who do not speak Icelandic.

DEILA