HVEST: Breytingar á þjónustu vegna COVID-19

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða hefur þurft að gera breytingar á þjónustu stofnunarinnar vegna kórónaveirunnar vegna þess að mikilvægt er að lágmarka smithættu vegna COVID-19. Breytingar ná til flestra starfssviða stofnunarinnar og eru gerðar til þess að draga út smithættu og vernda skjólstæðinga og starfsfólk.

Enginn má koma inn á stofnunina nema hafa tilkynnt komu sína símleiðis áður. Á heilsugæsluna má enginn koma nema að hafa pantað tíma áður. Ýmis þjónusta verður sett á bið, svo sem ferðamannabólusetningar, eyrnaskolanir, spirometria, holterrannsóknir, blóðþrýstingsmælingar, blóðsykurmælingar og fleira.

Heimsóknarbann er á hjúkrunarheimilum og legudeild á Patreksfirði. Á Ísafirði er göngudeild lokuð tímabundið. Hjá tannlæknum er lokað og  einungis neyðarþjónustu er sinnt í síma 893-4511.

Samband í síma og gegnum net

Á dagvinnutíma:

  • Bráð veikindi fara í 112 – mikilvægt er að tilgreina ef grunur er um Covid-19
  • Allar spurningar vegna Covid-19 fara í gegnum síma 1700
  • Hægt er að panta símatíma læknis í gegnum heilsuvera.is
  • Netspjall opið á heimasíðu hvest.is
  • Á dagvinnutíma er hægt að hringja í 450 4500 og fá samband við hjúkrunarfræðing á heilsugæslu.

Utan dagvinnutíma:

  • Bráð veikindi fara í 112 – mikilvægt er að tilgreina ef grunur um Covid-19
  • Allar spurningar vegna Covid-199 fara í gegnum síma 1700
  • Ef mikil bið er hjá 1700 og veikindi sem ekki geta beðið næsta dags (ekki Covid-19) má hringja í síma 450 4565 (bráðadeild) og þar mun hjúkrunarfræðingur leysa úr málunum og gefa símann áfram til vakthafandi læknis ef þarf.
DEILA