Höldum heilbrigðum börnum í skóla

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út leiðbeiningar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, UNICEF og Rauða krossins um lykilskilaboð og forvarnaraðgerðir vegna COVID-19 í skólum.

Í þeim eru settar fram skýrar og framkvæmanlegar leiðbeiningar um öruggar aðgerðir sem tengjast því að koma í veg fyrir smit, greina það snemma og verjast COVID-19 í skólum og öðrum menntastofnunum. .

Með því veita upplýsingar og fræða um staðreyndir um COVID-19 má draga úr ótta og kvíða nemenda varðandi sjúkdóminn. Í þessum leiðbeiningum eru sett fram lykilskilaboð og atriði fyrir skólastjórnendur, kennara og starfsfólk skóla, foreldra, umönnunaraðila og almenning, sem og börnin sjálf, til að þau geti tekið þátt í að efla öryggi og heilbrigði innan skólanna.

Fræðsla getur hvatt nemendur til að tala fyrir forvörnum gegn sjúkdómum heima fyrir, í skólum og í samfélaginu með því að ræða við aðra um hvernig koma má í veg fyrir útbreiðslu þeirra.
Í leiðbeiningunum er einnig að finna ýmsa gátlista og hugmyndir að heilbrigðisfræðslu fyrir ólíka aldurshópa.

Meðal þess sem fjallað er um og hvatt til við foreldra, umönnunaraðila og almenning er:
– Að kynna sér nýjustu staðreyndir og varast falsfréttir eða sögusagnir sem kunna að vera í umferð.
– Að halda heilbrigðum börnum í skóla og kenna þeim góðar hreinlætisvenjur.
– Að hjálpa börnum og ungmennum að ráða við streitu.

DEILA