Dýrafjarðargöng – Framvinda í vikum 7 til 10

Hér er samantekt af því helsta sem gerðist í vikum 7 til 10 við vinnu Dýrafjarðarganga.

 

Uppsetningu á einangrunarklæðingu til vatnsvarna í göngunum er lokið og unnið við að klára að sprautusteypa yfir klæðingarnar.

 

Þrjú neyðarrými hafa verið steypt og steypuvinna er byrjuð á tveimur síðustu neyðarrýmunum. Búið er að steypa alla fimm tengibrunnana fyrir 132 kV jarðstreng Landsnets.

 

Haldið var áfram að keyra fyllingar og neðra burðarlag í veginn í göngunum. Byrjað að setja upp festingar fyrir skilti í göngunum.

 

Haldið var áfram að leggja ídráttarrör fyrir rafmagn og stýristrengi meðfram hægri vegöxl og í tæknirýmin. Byrjað var að grafa skurð fyrir 132 kV jarðstreng í vinstri vegöxl. Uppsetning á búnaði í tæknirýmum er hafin. Vinna hélt áfram við uppsetningu á festingum fyrir strengstiga sem mun liggja eftir endilöngum göngunum.

 

Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar verið er að setja niður tengibrunn fyrir stýristrengi og rafmagn, undirstöður fyrir kerfisgólf í tæknirými, þverun ídráttarröra og þverun drenrörs.

 

Fyrir hönd framkvæmdaeftirlits Dýrafjarðarganga

Baldvin Jónbjarnarson

DEILA