Drangsnes: heitu pottarnir lokaðir vegna Covid 19

Heitu pottarnir á Drangsnesi. Mynd: Westfjords.is

Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps hefur ákveðið að loka skrifstofu sveitarfélagsins tímabundið fyrir almenningi til að tryggja öryggi starfsmanna sem og íbúa sveitarfélagsins. Frá og með mánudeginum 23. mars 2020 er skrifstofa Kaldrananeshrepps því einungis aðgengileg í gegnum síma 4513277/6914131 eða tölvupóst drangsnes@drangsnes.is frá kl 9:00 til 15:00, þar til annað verður ákveðið.

Sundlaugin og fjörupottarnir

Aðrar breytingar á þjónustu sveitarfélagsins eru þær að í óákveðin tíma er lokað fyrir aðgang að sundlauginni og að pottunum í fjörunni.

Íbúar eru vinsamlegast beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum sveitarfélagsins, því að breytingar á þjónustu eru endurskoðaðar daglega í takt við ákvarðanir yfirvalda.

DEILA