70 Patreksfirðingar í sóttkví

Stór hópur Patreksfirðinga sem verið hefur á ferðalagi á skilgreindu hættusvæði er nú kominn eða á leiðinni heim. Um 20 manns komu 15. mars og um 50 manns koma 17. mars. Allir þurfa að fara í sóttkví við komuna. Hópurinn var í skemmtiferð á vegum fyrirtækis síns.

 

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða hefur verið í sambandi við fararstjóra hópsins, sem segir alla einkennalausa. Haft verður samband við alla við komuna til landsins til að skerpa á fyrirmælum um sóttkví.

 

Ófærð hefur sett strik í ferðalög fyrri hópsins hér innanlands og mögulegt er að seinni hópurinn verði einnig í basli við að koma sér heim vegna veðurs. Þrátt fyrir þetta er mikilvægt að reglur um sóttkví verði haldnar til að minnka líkur á smiti.

 

Enginn hefur greinst með Covid-smit í umdæminu. Ný vefsíða, Covid.is, birtir gagnlegar upplýsingar fyrir almenning um allt sem viðkemur veirunni. Þar eru einnig tölulegar upplýsingar eins nýjar og hægt er.

 

DEILA