Vestfirsk slagsíða á aldrei fór ég suður 2020

Sr. Magnús Erlingsson hlýðir AFES kallinu. Mynd:afes.

Mugison, Between Mountains, Páska-Helgi Björns og hljómsveitin ÝR eru meðal þeirra sem koma fram á Aldrei fór ég suður 2020.

 

Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fer fram um páskana næstkomandi, venjum samkvæmt á Ísafirði, 10. og 11. apríl. Hátíðin sem var fyrst haldin árið 2004 er hve best þekkt fyrir fádæma fjölbreytni í dagskránni og eins og ávallt er frítt inn á hátíðina fyrir alla fjölskylduna. Hátíðin fer fram í húsnæði Kampa á Ísafirði, að kvöldi föstudagsins langa og laugardags fyrir páska. Samhliða aðaldagskránni fara fram fjölmargir hliðarviðburðir í sveitarfélaginu sem kynntir verða sérstaklega þegar nær dregur, þar á meðal uppistandskvöld í Ísafjarðarbíói, tónleikar á Suðureyri og Flateyri auk fjölda annarra listviðburða.

 

Þeir sem fram koma á stóra sviðinu eru Moses Hightower, Kælan mikla, Bríet, Auður, K.óla, Mugison, GDRN, Hermigervill, Vök, Hipsumhaps, Kontinuum, sigursveit Músiktilrauna, Helgi Björnsson, Between Mountains, önfirska hljómsveitin Æfing og hin ísfirska og goðsagnakennda hljómsveit ÝR.

 

Það hlýtur að teljast til tíðinda að hljómsveitin ÝR snúi aftur í heimabæinn og komi fram í fyrsta sinn í áratugi. ÝR gaf út hljómplötuna ÝR var það heillin fyrir hartnær 45 árum síðan, lagið „Kanínan” gerði það gott af þeirri plötu og flestir sem þekkja það lag ekki síst eftir að Sálin hans Jóns míns tók það upp á sína arma. Það mætti segja að það sé vestfirsk slagsíða á dagskrá hátíðarinnar en hana prýða nokkrir fánaberar vestfirskrar tónlistar og undirstrika hversu rík tónlistarmenning er að finna á Ísafirði og nágrenni. Má þar nefna súgfirsku sveitina Between Mountains, hinn ísfirska Helga Björns, súðvíska listamanninn Mugison og önfirsku sveitina Æfingu en í henni er m.a. Siggi Björns sem gerði lífstíðarsamning við hátíðina á upphafsárum hennar.

 

Í skemmtilegu kynningarmyndbandi sem hátíðin birtir í dag má sjá ýmsa íbúa Ísafjarðarbæjar við sín daglegu störf, þ.m.t. sóknarprestinn, heilbrigðisstarfsfólk, lögregluna, hafnarstjóra, bæjarstjóra, fólk í þjónustu og við rækjuvinnslu. Allt er fólkið að vinna með hljóðfæri á einhvern máta enda má finna tónlistina út um allt í bænum. Myndbandið endurspeglar einnig að hver og einn íbúi sveitarfélagsins tekur virkan þátt í veislunni á páskunum og Ísafjörður sem og nágrannabyggðalög bjóða alla velkomna vestur í fjörið. Lagið sem hljóðskreytir myndbandið svo skemmtilega er lagið Íbízafjörður sem tónlistarmaðurinn Hermigervill gaf hátíðinni núna í vor. Hermigervill er ættaður úr eynni Vigur í Ísafjarðardjúpi og er sérstakur vinur hátíðarinnar.

 

Aldrei fór ég suður er tónlistarhátíð fyrir alla fjölskylduna og er einn af stærstu viðburðum Skíðaviku Ísfirðinga. Landsmenn eiga því gott í vændum með skíðaparadís og sprúðlandi menningu alla páskahátíðina á Ísafirði. Enn og aftur býður Aldrei fór ég suður upp á heimsklassadagskrá í tvo daga þar sem aðgangseyrir er enginn, með tilstuðlan góðs samstarfs fyrirtækja, opinberra sjóða og einkaaðila.

 

https://youtu.be/BD6N6AR3PPM

DEILA